Líkamsárás í Kópavoginum

Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna líkamsárásar í Kópavoginum á níunda tímanum í gærkvöldi. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar en ekki er greint frekar frá atvikum málsins þar. 

Á sjöunda tímanum í gær var tilkynnt til lögreglu um þjófnað úr verslun í miðborginni og sá grunaði var látinn laus að lokinni skýrslutöku. Á níunda tímanum í gærkvöldi var síðan tilkynnt til lögreglu um innbrot í bifreið í Austurbænum (hverfi 108). 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert