Þriðjungur einkennalaus við greiningu

Leikskólinn Jörfi í Hæðargarði.
Leikskólinn Jörfi í Hæðargarði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alls hafa 107 Covid-19-smit verið tengd við leikskólann Jörfa. Síðasta smitið sem rakið hefur verið til Jörfa greindist í gær.

RÚV greinir frá þessu.

Samkvæmt upplýsingum sem mbl.is hefur frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra eru þetta tölur frá því klukkan 17 í gær, 23 starfsmenn hafa greinst á Jörfa og 30 nemendur leikskólans. Fyrsta smitið greindist í Jörfa 16. apríl. Þar kemur fram að þriðjungur þeirra sem hafa greinst með smit var einkennalaus við greiningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert