Íbúar Íslands 369.870 talsins

Íslendingum fjölgaði á fyrsta ársfjórðungi.
Íslendingum fjölgaði á fyrsta ársfjórðungi. Ljósmynd/Dagný Hinriksdóttir

Samtals bjuggu 369.870 manns á Íslandi í lok fyrsta ársfjórðungs 2021, 189.580 karlar og 180.300 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.290 á ársfjórðungnum eða um 0,3%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 237.470 manns en 132.400 utan þess.

Á fyrsta ársfjórðungi 2021 fæddust 1.140 börn en 580 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 530 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 180 umfram brottflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 350 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu að því er segir á vef Hagstofu Íslands.

Flestir erlendir ríkisborgarar fluttust til Póllands

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 60 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 120 íslenskir ríkisborgarar af 280 alls. Af þeim 980 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 360 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (140), Noregi (50) og Svíþjóð (70), samtals 260 manns af 460. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 290 til landsins af alls 1.330 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst en þaðan fluttust 120 erlendir ríkisborgarar til landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert