Áslaug Arna sækist eftir 1. sæti í Reykjavík

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur gefið formlega út að hún sækist …
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur gefið formlega út að hún sækist eftir 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ljósmynd/Aðsend

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur gefið út að hún sækist eftir 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í sameiginlegu prófkjöri Reykjavíkurkjördæmanna 4-5 júní fyrir alþingiskosningar í haust.

Áslaug var í öðru sæti á lista Sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir síðustu kosningar, en hún hafði endað í fjórða sæti í prófkjöri fyrir bæði kjördæmin.

„Í störfum mínum síðastliðin ár hef ég lagt mig fram um að nýta þau tækifæri sem ég hef sóst eftir og fengið til að vinna að því að hafa góð áhrif á samfélag okkar og tryggja réttindi einstaklinga. Innan Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi og sem dómsmálaráðherra. Stjórnmál eiga að snúast um það að gera samfélagið betra og réttlátara þannig að sem flestir geti nýtt þau tækifæri sem til staðar eru. Við eigum að stefna að því að einfalda líf fólks og að kerfið lagi sig að fólki en fólk þurfi ekki að laga sig að kerfinu.

Ég vil byggja á bjartsýni til framtíðar, nýta góðar hugmyndir og raunhæfar lausnir, tryggja öryggi okkar og samkeppnishæfni landsins og sameina ólík sjónarmið í samfélaginu. Það eru mikilvæg verkefni framundan en á sama tíma bíða okkar enn fleiri tækifæri sem við þurfum að grípa,“ segir í tilkynningu frá Áslaugu vegna framboðsins.

Áslaug var skipuð dómsmálaráðherra í september 2019, en hún hefur verið alþingismaður frá því árið 2016 og gegndi formennsku í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, sat í efnahags- og viðskiptanefnd og gegndi formennsku í Íslandsdeild NATO. Síðar gegndi hún formennsku í utanríkismálanefnd Alþingis og formennsku í Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins.

Áslaug var árið 2015 kjörin ritari Sjálfstæðisflokksins en hafði áður áður gegnt formennsku í Heimdalli, setið í stjórn SUS og miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert