Brautskráning Framhaldsskólans í Mosfellsbæ fór fram í síðustu viku þar sem 28 nemendur útskrifuðust úr skólanum.
Dúx skólans er Helga Halldórsdóttir en hún fékk einnig viðurkenningu fyrir besta árangur í umhverfisfræði, raungreinum, íslensku og ensku.
Af félags- og hugvísindabraut voru brautskráðir sex nemendur og einn af náttúruvísindabraut. Af opinni stúdentsbraut voru brautskráðir 19 nemendur og af sérnámsbraut voru brautskráðir tveir nemendur.