Hætta að skima bólusetta eftir 1. júlí

Heilbrigðisstarfsfólk á landamærunum.
Heilbrigðisstarfsfólk á landamærunum. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis að halda óbreyttu fyrirkomulagi sóttvarnaaðgerða á landamærum til 1. júlí.

Frá þeim tíma verður slakað á aðgerðum, þar sem hætt verður að skima þá sem framvísa vottorðum um bólusetningu eða fyrri sýkingu af völdum Covid-19, að því er segir í tilkynningu.

Einnig verður hætt að skima börn fyrir Covid-19 við komuna til landsins.

Minnisblað sóttvarnalæknis

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert