Tveir greindust með kórónuveirusmit innanlands í gær og var hvorugur þeirra í sóttkví.
Í tilkynningu frá almannavörnum kemur fram að smitin greindust hjá ferðamönnum á heimleið.
Vel gekk að rekja ferðir þeirra og fór enginn í sóttkví vegna þeirra.
49,1% af íbúum Íslands eldri en 16 ára eru núna fullbólusettir.
Dagskrá bólusetninga í vikunni
Í tilkynningu frá almannavörnum í gær var greint frá nýju fyrirkomulagi varðandi uppfærslu Covid-talna. Vegna góðs árangurs í baráttu við veiruna verður tölulega síðan á Covid.is uppfærð á mánudögum og fimmtudögum. Vegna 17. júní verður hún þó uppfærð á föstudaginn. Frá og með 1. júlí verða tölurnar uppfærðar einu sinni í viku, eða á fimmtudögum.
Ein undantekning er á þessu nýja verklagi, því ef kórónuveirusmit greinist utan sóttkvíar verða þær upplýsingar sendar út, rétt eins og gert var núna í morgun.