Aldrei fleiri verið brautskráðir úr HR

Frá útskriftarathöfn HR í Hörpu í dag.
Frá útskriftarathöfn HR í Hörpu í dag. Ljósmynd/Aðsend

Aldrei hafa fleiri nemendur verið brautskráðir frá Háskólanum Reykjavík, en 688 nemendur voru brautskráðir í dag við hátíðlega athöfn í Hörpu. Líkt og á síðasta ári var brautskráningin með óhefðbundnu sniði vegna sóttvarnatakmarkana.

Í staðinn fyrir eina athöfn var brautskráningunni skipt í tvær athafnir, eina fyrir hádegi og eina eftir hádegi.

Úr grunnnámi voru 479 nemendur brautskráðir og 209 úr meistaranámi. Kynjahlutfallið í útskriftarhópnum var frekar jafnt eða 352 konur og 336 karlar.

Flestir luku námi frá verkfræðideild háskólans eða 154 nemendur og þar af 81 með meistaragráðu. Næststærsti hópurinn brautskráðist frá viðskiptadeild eða 145 nemendur og þar af 50 með meistaragráðu.

Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, flutti ávarp.
Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, flutti ávarp. Ljósmynd/Aðsend

„Gríðarleg tækifæri“ á Íslandi

Dr. Ari Kristinn Jónsson rektor lagði áherslu í ávarpi sínu á að menntun væri nú og yrði undirstaða samkeppnishæfni og lífsgæða, fyrir einstaklinga og fyrir samfélagið allt.

„Lykillinn að því að skapa sem mest verðmæti án þess að ganga á sameiginlegar auðlindir er að nýta menntun, þekkingu og nýsköpun. Á Íslandi eru gríðarleg tækifæri til að skapa betra samfélag þar sem jafnrétti, sanngirni, vellíðan og heilbrigði eru í fyrirrúmi. Um allan heim er tæknibylting einnig að skapa tækifæri til að gera meira og betur, á grunni sjálfvirkni, gervigreindar, gagnagreiningar, líftækni og margs fleira. Öll þessi tækifæri kalla á vel menntaða og hæfa einstaklinga og forsenda þess að geta nýtt þau, er geta til að afla þekkingar og nýta hana til að finna nýjar lausnir. Menntun þarf að vera í takti við þarfir samfélagsins og í takti við þarfir nemenda sem eru mismunandi og alltaf að breytast og fjölbreytni og stöðug framþróun eru þess vegna forsendur öflugs háskólastarfs á Íslandi,“ sagði Ari í ávarpi sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert