Eru nú hættar að selja poka við kassann

Verslanir Bónuss og Hagkaups munu frá og með deginum í dag, 3. júlí, hætta að selja lífræna plastburðarpoka á kassasvæði í verslunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Högum. 

Ný lög sem byggj­ast á til­skip­un­um Evr­ópu­sam­bands­ins girða fyrir það að verslanir megi hafa niður­brjót­an­lega burðarpoka til sölu á af­greiðslu­svæðum sín­um.

Þá tók bann við að setja tilteknar algengar einnota vörur úr plasti á markað gildi í dag, að því er fram kemur í tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

„Meðal vara sem bannað er að setja á markað eru einnota bómullarpinnar úr plasti, plasthnífapör og -diskar, sogrör, hræripinnar og blöðrustangir. Matarílát, drykkjarílát, glös og bollar úr frauðplasti eru einnig óheimil. Undantekningar eru gerðar ef vörur flokkast sem lækningatæki,“ segir í tilkynningunni frá ráðuneytinu. 

Forstjórinn minnir á fjölnota poka

Áfram verður hægt að kaupa lífræna  plastburðarpoka í verslunum Bónuss og Hagkaups en þeir verða ekki á afgreiðslukössum heldur inni í verslun. Því er mikilvægt fyrir viðskiptavini verslana að muna eftir fjölnota innkaupapokum í verslunarferðum. 

„Viðskiptavinir verslana Bónuss og Hagkaups koma mjög margir með fjölnota poka í verslun eða kaupa fjölnota poka. Hins vegar eru ennþá margir sem kaupa lífræna niðurbrjótanlega burðarpoka á kassasvæði. Við hvetjum viðskiptavini okkar til þess að finna sér eftirminnilega leið við að taka fjölnota poka með í verslunarferðina. Það tekur nokkur skipti að breyta hegðun en þegar búið er að endurtaka hegðunina nokkrum sinnum er líklegt að hún festi sig í sessi. Kannski mætti segja að þetta sé eins og að æfa gamlan lagstúf; bara að reyna að endurtaka hann nógu oft þá man maður hann. Munum eftir fjölnota,“ er haft eftir Finni Oddssyni, forstjóra Haga, í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert