22 verkefni fengu 100.000 til 300.000 krónur

Frá Menningarnótt í Reykjavík fyrir kórónuveirufaraldur.
Frá Menningarnótt í Reykjavík fyrir kórónuveirufaraldur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

22 verkefni fengu styrk úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar og verða því hluti af menningardagskrá 21. ágúst næstkomandi. Styrkirnir eru á bilinu 100.000 til 300.000 krónur og er tilgangur verkefnanna að lífga upp á borgina og skemmta gestum og gangandi á Menningarnótt.

„Alls bárust 95 umsóknir í pottinn þetta árið og var leitast við að veita fjölbreyttum verkefni brautargengi,“ segir í tilkynningu frá Landsbankanum og Reykjavíkurborg.

Verkefnin sem fengu styrk eru eftirfarandi:

Fjölskylduvinnustofur um ræktun, óskir og drauma – Stofnun Sæmundar Fróða

Vinnustofur sem snúa að ræktun við íslenskar aðstæður, m.a. verður kennt hvernig hægt er að byggja grasstóla með einföldum hætti og búa til einfalt vatnsræktunarkerfi. Sigríður Þorgeirsdóttir, heimspekiprófessor við HÍ, flytur erindi og einstaklingar úr ólíkum áttum segja sögur sínar. Fluttur verður þátttöku-gjörningurinn Draumasafnið þar sem börn vinna með hugmyndir sínar um sitt nærumhverfi.  Að lokum fer fram matarmenningarhátíð þar sem fólkið úr hverfinu býður upp á mat með einfaldri uppsetningu.

Búkolla tónlistarævintýri – Töfrahurð

Frumflutningur á nýju tónlistarævintýri fyrir börn, byggðu á þjóðsögunni „Búkollu“ úr safni Jóns Árnasonar. Verkið er skrifað með börn og ungmenni í huga, til að skemmta þeim en einnig til að vekja þau til vitundar um menningu og sögu þjóðar okkar. Flytjendur eru CAPUT-hópurinn undir stjórn Guðna Franzsonar og sögumaður er Huld Óskarsdóttir.

Opið hús í Frakklandi – Hákon Bragason

Í garðinum Frakkland á Frakkastígi verður í sumar starfrækt lifandi lista- og viðburðarými.  Á Menningarnótt verður þétt dagskrá með upprennandi listafólki þar sem skapað verður hlýlegt og heimilislegt rými í hjarta miðbæjarins. Viðburðir af ýmsum toga fara fram allan daginn t.d. tónleikar, gjörningar og matargerð.

Reykjavík, borgin mín – Félagið íslensk grafík

Grafiksýning 20-40 listamanna í Grafíksalnum, Hafnarhúsinu, þar sem hver listamaður túlkar sýn sína á höfuðborginni í margbreytileika grafíklistar aðferða. Einnig mun vera grafíksmiðja á verkstæði félagsins í sama húsnæði, þar sem gestir og gangandi geta prentað sín eigin listaverk með aðstoð félagsmanna.

Grand Opening/Smekkleysa og Stak – Smekkleysa

Formleg opnun á nýju fjölnotarými Smekkleysu og Stak við Hjartatorg. Hljómsveitirnar Ólafur Kram, Pínulitlar peysur og tónlistarmaðurinn Kaktus Einarsson koma fram.

Matur-Dans-Tónlist – Buenaventura-hópurinn

Kynning og samþætting á menningu frá ýmsum löndum við íslenska menningu. Fjölmenningarlegur viðburður þar sem matargerð, dans og tónlist er blandað saman.

Máltíð x Sushi x Elin Margot og Fiskmarkaðurinn – Fiskmarkaðurinn

Fiskmarkaðurinn ætlar að gera sushi-listaverk með Elínu Margot og verkefninu Máltíð. Hugmyndin er að gera sushi-listaverk sem fólk getur horft á og borðað þegar það er tilbúið.

Eldklárar og eftirsóttar: Stytt í spunann – Eldklárar og eftirsóttar á Menningarnótt

Spunahópurinn Eldklárar og eftirsóttar framkvæma feminíska gjörninga í tengslum við menningararf kvenna í Reykjavík. Hópurinn samanstendur af tíu þaulreyndum spunaleikkonum úr ólíkum áttum sem munu framkvæma átta tuttugu mínútna spunagjörninga fyrir framan fjórar styttur af konum og eftir konur í miðborg Reykjavíkur.

Síðasta lag – Una Sveinbjarnardóttir og Tinna Þorsteinsdóttir

Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari og Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari spila lög af nýrri plötu í bland við spuna og óskalög.

Ljóð á leið í bæinn – Hólavallagarður/Heimir Björn Janusarson 

Ung skáld á öllum aldri flytja ljóð í Hólavallakirkjugarði undir listrænni stjórn skáldsins Sigurlaugar Diddu Jónsdóttur.  Fimm skáld stíga á stokk ásamt myndarlegu tónlistaratriði.

Tíst, tíst! Ćwir, ćwir! Tweet, tweet! The migratory birds at Menningarnótt.

Ewa Marcinek, Nanna Gunnarsdóttir

Leikræn sögustund fyrir börn og foreldra þeirra þar sem unnið er með leiklist, bókmenntir og hljóðupplifanir.  Fjöltyngdur og fjölskylduvænn viðburður sem fer fram á íslensku, ensku, pólsku og á fuglasöng-ísku.

Stöðufundur í Gröndalshúsi – Kristína Aðalsteinsdóttir og Þorvaldur Sigurbjörn Helgason

Í sýningunni birtast verk tíu listamanna sem allir eru verðugir fulltrúar aldamótakynslóðarinnar (e. Millennials.) Hópurinn samanstendur af fimm myndlistarmönnum og fimm rithöfundum sem eru ólíkir innbyrðis en eiga það sameiginlegt að verk þeirra takast á við samtímann og stöðu ungs fólk í dag.

Bingó í bænum – Lalli töframaður

Bingósamvera með Lalla Töframanni sem heldur töfrasýningar bæði fyrir og meðan á bingói stendur. Glæsilegir bingóvinningar frá fyrirtækjum og stofnunum í miðbænum og allir krakkar fá blöðrudýr í vinning.

Capoeira á Austurvelli – Capoeira

25 manna glæsileg sýning á capoeira á Austurvelli. Capoeira er bardagalist frá Brasilíu. Iðkendur beygja sig undan spörkum andstæðingsins með glæsilegum hreyfingum og loftfimleikum og nýta sér lúmsk brögð í tilkomumiklum bardaga með lítilli eða engri snertingu. Einnig er spunnið saman við herlegheitin seiðandi dans og lifandi tónlist sem leikin er á hefðbundin hljóðfæri sem smíðuð eru skv. aldagamalli hefð úr hráefni úr Amazon-skóginum.

Syngdu með Rokkkór Íslands – Rokkkór Íslands

Rokkkór Íslands hefur í nokkur ár haldið uppi fjöri með sitt sing along prógram. Flutt verða klassísk rokklög úr ýmsum áttum sem allir þekkja og geta sungið með.

Hannyrðapönk í almenningsrými – Sigrún hannyrðapönkari

Hannyrðapönk í almenningsrými, einnig kallað hannyrðagraff, er jákvætt hreyfiafl fyrir nærsamfélagið. Grunnhugmynd hannyrðapönksins; að hver og ein manneskja sem vill láta gott af sér leiða með handavinnu, handverki og/eða hannyrðum sínum getur starfað undir formerkjum hannyrðapönksins. Í þessari smiðju getur fólk lært grunnatriði útsaums og hvernig er hægt að graffa almenningsrými bæði með nýjum og gömlum útsaumi og þannig stuðla gegn sóun textíls með afturnýtingu.

Hliðarheimur plantna – Fischersund

Fischersund býður gestum menningarnætur upp á heildræna upplifun þar sem öll skynfæri eru virkjuð. Þau munu hanna nýjar plöntur inn í Flóru Íslands sem í þeirra höndum fá ilm, hljóm og áferð. Á sýningunni gefst gestum kostur á að kynnast plöntunum, finna ilminn af þeim, sjá og snerta.

Perlur Japans og Íslands – Pamela De Sensi og Aulos Flute Ensemble

Aulos Flute Ensemble mun mæta til leiks með stórar og smáar flautur, leiða áheyrendur í ferðalag frá eyju til eyju og eiga samtal tveggja heima í austri og vestri. Áheyrendum mun gefast kostur á að heyra japanskar flautuperlur sem ekki hafa heyrst hérlendis áður. Gildi tónleikanna felst því bæði í spennandi samspili íslenskrar og japanskrar menningar og fagna 40 ára afmæli stofnunar íslensk-japanska félagsins á Íslandi.

Deit, vín og grín – Vínstúkan Tíu sopar

Gestum Vínstúkunnar verður boðið upp á menningarlega dagskrá þar sem nýjungar eru allsráðandi. Helst má nefna hraðstefnumót, blindsmakk og uppistand.

Reykjavík barnanna – sýning og söguganga – Linda Dögg Ólafsdóttir

Sýning á myndum úr bókinni Reykjavík barnanna en bókin kemur út á Menningarnótt. Sýningin er utandyra á stöplum í Pósthússtræti. Þar er fjallað um sögu Reykjavíkur og má sjá myndir úr bókinni ásamt gömlum ljósmyndum og öðru myndefni sem haft var til fyrirmyndar við gerð hennar

Elektróník í Grófinni – Auður Viðarsdóttir

Til að vekja athygli á því sem er að gerast í elektrónískri tónlist í Reykjavík og þeim möguleikum sem boðið er upp á á Borgarbókasafninu með nýju tónlistarverkstæði, varð til sú hugmynd að bjóða upp á elektróníska tónleika á mjög óvenjulegum stað á Menningarnótt. Tónlistarmenn koma sér fyrir á sviði sem verður á skyggninu yfir inngangi Borgarbókasafnsins í Grófinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert