Kamilla, Alma og Víðir á upplýsingafundi á morgun

Víðir Reynisson og Alma Möller.
Víðir Reynisson og Alma Möller. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað upplýsingafundar á morgun, þriðjudag, klukkan 11.

Á fundinum fara Kamilla S. Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, Alma D. Möller landlæknir og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn Almannavarna, yfir stöðu mála varðandi framgang Covid-19-faraldursins hér á landi síðustu daga og vikur. 

Næsti upplýsingafundur verður síðan haldinn á fimmtudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert