„Erum komin yfir erfiðasta tímabilið“

Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráðherra á leiðinni á fundinn á …
Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráðherra á leiðinni á fundinn á Bessastöðum. mbl.is/Unnur Karen

Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráðherra, fullyrðir að þjóðin sé komin yfir erfiðasta tímabilið þegar kemur að efnahagslegum áhrifum kórónuveirufaraldursins á ferðaþjónustuna hér á landi. Inntur eftir því segir hann ekki útilokað að ráðist verði í frekari aðgerðir, kalli aðstæður á það.

„Það þarf að meta þörfina fyrir slíkt. Ég tel að aðgerðirnar sem að við höfum kynnt til sögunnar hafi gagnast mjög vel. Við höfum lagað þær að aðstæðum hverju sinni og mér finnst eðlilegt að við höldum áfram að gera það.

Ef aðstæður kalla á að við gerum breytingar á úrræðum sem eru í gildi eða kynna til sögunnar frekari aðgerðir þá finnst mér eðlilegt að það sé gert. Hins vegar kemur þing ekki saman að nýju fyrr en eftir kosningar. Þá er gott að vita til þess að mörg úrræðanna eru með gildistíma út árið,“ segir Bjarni í samtali við mbl.is, að loknum ríkisráðsfundi á Bessastöðum

Ríkisstjórn Íslands ásamt Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, á ríkisráðsfundi …
Ríkisstjórn Íslands ásamt Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, á ríkisráðsfundi í dag. mbl.is/Unnur Karen

Segir stuðning við rekstraraðila ekki tapað fé

Aðspurður segir Bjarni þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa ráðist í til að stemma stigu við áhrifum kórónuveirufaraldursins á ferðaþjónustuna gilda út árið. Þá segir hann jákvætt að ekki hafi þurft að loka neinni starfsemi vegna faraldursins hér á landi eins og síðasta vetur og að hagur sé af því að styðja við rekstraraðila þegar á reynir.

„Nú er það þannig að aðgerðirnar sem við höfum lögfest eru almennar. En það er hins vegar rétt að þær hafa umfram aðrar greinar runnið til ferðaþjónustu en það er svo sem ekkert skrítið þar sem ferðaþjónustan og tengdar greinar hafa orðið fyrir mesta áfallinu. Í því samhengi má segja að það hafi náðst mjög góður árangur í efnahagsaðgerðum, þ.e.a.s. að beina stuðningnum þangað sem þörfin er mest. Menn geta séð það á skýrslum sem við höfum gefið út að okkur hefur tekist að teygja okkur til þeirra sem hafa orðið fyrir mesta áfallinu og ég tel okkur vera komin yfir mesta skaflinn," segir Bjarni.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra á leið á fundinn.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra á leið á fundinn. mbl.is/Unnur Karen

„Úrræðin eru til staðar og hafa gildistíma út árið vegna þess að við höfum talið eðlilegt, að jafnvel þótt við værum farin að létta á samkomutakmörkunum og öðrum ráðstöfunum og ferðamenn væru farnir að koma, að þá væri ekki hægt að útiloka að það gætu komið upp aðstæður sem kölluðu á frekari stuðning. Ég fullyrði það að við erum komin yfir erfiðasta tímabilið. Við erum komin yfir tímabilið þar sem það þurfti að loka starfseminni. Það sést t.d. á aðgerðunum sem nú eru í gildi að það er engri starfsemi lokað," bætir hann við. 

„Stuðningur við rekstraraðila er ekki tapað fé. Það er fjármunum sem er ráðstafað með skynsamlegum hætti því við erum að forða því að það verði í raun og veru meira tjón annars staðar, bæði í formi atvinnuleysis, gjaldþrota, félagslegra verkefna sem myndu á endanum skola á fjörur ríkisstjórnarinnar.“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra á leið á fundinn á Bessastöðum.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra á leið á fundinn á Bessastöðum. mbl.is/Unnur Karen

Bólusetningar hafa gjörbreytt stöðunni

Þótt fjöldi kórónuveirusmita hafi aldrei verið meiri hér á landi segir Bjarni aðstæður sem nú eru uppi vera betri en þær voru í byrjun faraldursins og að það sé góðu gengi í bólusetningum að þakka.

„Í mars, apríl hefði nánast verið hægt að loka flugvellinum. Það komu engin flug til landsins. Bandaríkjamenn lokuðu á flug Íslendinga til Bandaríkjanna nema til valinna flugvalla. Þetta er algerlega ósambærilegt. Jafnvel þótt smittölur séu þetta háar í dag hefur vel heppnuð bólusetningarframkvæmd gjörbreytt stöðunni. Það má sjá á veltutölum og á umferðinni í gegnum flugvöllinn.

Þannig að í mínum huga erum við ótvírætt komin í gegnum langerfiðasta tímabilið í efnahagslegu samhengi. Sömuleiðis erum við komin í gegnum erfiðasta tímabilið í faraldrinum þar sem okkur hefur tekist að bólusetja flesta. Það þýðir ekki ástandinu sé lokið en við erum samt komin í gegnum erfiðasta tímabilið,“ segir hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert