Tveir óbólusettir á gjörgæslu

Landspítalinn við Hringbraut.
Landspítalinn við Hringbraut. Ljósmynd/mbl.is

Tuttugu og fjórir liggja nú inni á Landspítalanum með Covid-19. Þetta kemur fram á vef Landspítalans. 

Af þeim eru sautján bólusettir og sjö óbólusettir. 

Landsspítalinn hefur birt fjölda bólusettra og óbólusettra inniliggjandi sjúklinga með Covid-19 í hópum sem fimm manns eða fleiri eru í. 

Staðan á Landspítalanum í dag.
Staðan á Landspítalanum í dag. Ljósmynd/Landspítalinn

Fimm eru á gjörgæslu með Covid-19, þar af eru tveir óbólusettir. 

Tveir einstaklingar eru í öndunarvél. Ekki liggur fyrir hvort þeir séu bólusettir eða ekki enda færri en fimm. 

Alls hafa níu sjúklingar lagst inn á gjörgæslu með Covid-19, þar af fimm fullbólusettir.

Fjölgar um einn á gjörgæslu

Fjölgað hefur um einn á gjörgæslu og tvo á bráðadeildum Landspítalans frá því í gær. 

Staðan á spítalanum í gær.
Staðan á spítalanum í gær. Ljósmynd/Landspítalinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert