Minni fjárhagserfiðleikar í faraldrinum

Töluvert fækkar í hópi þeirra sem glíma við fjárhagserfiðleika.
Töluvert fækkar í hópi þeirra sem glíma við fjárhagserfiðleika. mbl.is/Kristinn Magnússon

Töluvert fækkar í hópi þeirra sem glíma við fjárhagserfiðleika og sömuleiðis dregur úr ölvunardrykkju í heimsfaraldrinum. Þetta kemur fram í fyrstu áfangaskýrslu stýrihóps heilbrigðisráðherra sem fjallaði um lýðheilsuáhrif Covid-19.

Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

Svandís Svavarsdóttir ráðherra skipaði tvo stýrihópa í nóvember 2020 til þess að vakta óbein áhrif Covid-19. Stýrihópunum er ætlað að kanna annars vegar áhrif á lýðheilsu og hins vegar á geðheilsu landsmanna og eru fyrstu áfangaskýrslurnar nú komnar út. 

Í annarri skýrslunni voru greindir 18 lýðheilsuvísar fyrir 18 ára og eldri. Samkvæmt henni minnkaði neysla ávaxta, grænmetis og sykurlausra gosdrykkja og þeim fækkaði sem nýttu virka ferðamáta til og frá vinnu eða skóla. Þá fækkað þeim sem telja sig mjög hamingjusama.

Tafla úr fyrstu áfangaskýrslu um lýðheilsumat á óbeinum áhrifum faraldursins …
Tafla úr fyrstu áfangaskýrslu um lýðheilsumat á óbeinum áhrifum faraldursins sem sýnir þær breytingar sem hafa orðið milli ára.

 

Ef niðurstöðurnar eru skoðaðar eftir kyni eru vísbendingar um að einmanaleiki hafi aukist meira hjá konum en körlum og að notkun virkra ferðamáta hafi minnkað meira hjá konum en körlum.

Neikvæð áhrif á líðan framhaldsskólanema

Í áfangaskýrslu um geðheilsu landsmanna kemur fram að almennt séð virðist flestum börnum á grunnskólaaldri á Íslandi hafa farnast vel.

Faraldurinn virðist hins vegar hafa haft afgerandi neikvæða áhrif á líðan framhaldsskólanema sem voru nánast alfarið í fjarnámi frá vori til ársloka 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert