Niðurstöður sýnatöku sem ráðist var í í gær eftir að grunur um smit kom upp í Grunnskóla Reyðarfjarðar hafa staðfest að minnsta kosti 10 smit á Reyðarfirði.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn á Austurlandi.
Smit voru staðfest bæði í Grunnskóla Reyðafjarðar og á Leikskólanum Lyngholti og var því tekin ákvörðun um að halda skólunum lokuðum í dag á meðan unnið væri að smitrakningu. Í gær var grunnskólanum einnig lokað og öll börn í 1.-3. bekk ásamt starfsfólki skimað.
Í dag um hádegi verður starfsfólki og börnum leikskólans boðið upp á sýnatöku og er fólk hvatt til að bóka sig og börnin sín á heilsuvera.is. Fyrir þá sem þurfa aðstoð við að bóka er einnig hægt að hringja í síma heilsugæslunnar 470-1420.
Þeir sem hafa tengsl eða hafa verið í nánu samneyti við smitaðan einstakling eru einnig hvattir til að fara í sýnatöku.