Aukið fjármagn í geðheilbrigðisþjónustu á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri. mbl.is/Sigurður Bogi

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðstafa 13 milljónum króna til að efla tímabundið þjónustu barna- og unglingageðteymis Sjúkrahússins á Akureyri.

Heilbrigðisráðherra hefur áður ráðstafað 102 milljónum króna í tiltekin átaksverkefni hjá Landspítalanum sem miða að því að efla geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungt fólk og stytta bið eftir greiningu og meðferð.

„Fyrir liggur að heimsfaraldur Covid-19 hefur skapað ýmis vandkvæði við veitingu þessarar mikilvægu þjónustu, samhliða því að eftirspurn eftir tilteknum þáttum geðheilbrigðisþjónustu hefur aukist,” segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Barna- og unglingageðteymi Sjúkrahússins á Akureyri (BUG) hefur starfað frá vorinu 2014. Á þjónustusvæði þess eru skráð tæplega 11.000 börn, sem eru um 14% allra barna og ungmenna á landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert