Sjóvá skili 2,5 milljörðum til viðskiptavina

Sjóvá.
Sjóvá.

Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna áforma Sjóvár um að greiða hluthöfum 2,5 milljarða króna í tengslum við hlutafjárhækkun félagsins.

Nefnt er að fjárhæðin komi til viðbótar við 2,65 milljarða króna arðgreiðslu ársins. Samtals ætli Sjóvá því að greiða hluthöfum rúmlega 5 milljarða króna.

„Ástæðu greiðslunnar til hluthafa segir Sjóvá vera þá að geta félagsins til að greiða tjón sé „fyrir ofan efri mörk viðmiða“. Það er vægt til orða tekið. Sjóvá liggur á gríðarlegum fjármunum sem félagið hefur sankað að sér með ofteknum iðgjöldum, ekki síst af bílatryggingum. Hluthafar Sjóvá eiga ekki þessi „efri mörk viðmiða“, heldur tryggingatakar. Með réttu á Sjóvá að skila þessum 2,5 milljörðum króna til viðskiptavina sinna,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir að Sjóvá hafi okrað á tryggingatökum áratugum saman, líkt og öll hin tryggingafélögin. Þannig hafi fyrirtækið byggt upp eiginfjárstöðu og um leið lagt „afganginn“ í bótasjóði undir því yfirskyni að þurfa að eiga fyrir tjónum.

„Evrópusambandið breytti þessu fyrirkomulagi fyrir löngu með Solvency 2 reglugerðinni. Samkvæmt henni er eigin fé tryggingafélaganna ætlað að mæta áhættu vegna tryggingastarfseminnar, ekki bótasjóðum (sem eru kallaðir tjónaskuld). Eigið fé Sjóvá er næstum helmingi hærra en Solvency 2 krefst. Nú ætlar Sjóvá að afhenda hluthöfum hluta af þessum umframsjóði – og sitja áfram sem fastast á bótasjóðum sínum. Það kallar Sjóvá í tilkynningu að „laga fjármagnsskipan félagsins.“ Félagið liggur einfaldlega á meiri peningum en þörf er fyrir vegna þess að það innheimtir óeðlilega há iðgjöld,“ kemur einnig fram í tilkynningunni.

Sömuleiðis segir þar að hluthafar Sjóvár hafi ekki aflað þessara fjármuna og eigi engan rétt á þeim. Því skorar FÍB á stjórn Sjóvár að leggja til við hluthafafund félagsins að láta hlutafjárhækkunina ganga til viðskiptavina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert