Ekki reiknað með gæsluvarðhaldi

Vopnað rán var framið í Apótekaranum Vallakór í gær.
Vopnað rán var framið í Apótekaranum Vallakór í gær. mbl.is/Þorsteinn

Maðurinn sem handtekinn var í gær eftir vopnað rán í apóteki í Vallakór var yfirheyrður nú í hádeginu. Þóra Jónsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að lögreglan telji málið upplýst og reiknar ekki með að farið verði fram á áframhaldandi gæslu yfir manninum.

Þóra staðfestir við mbl.is að maðurinn sé á tvítugsaldri, en þó yfir lögaldri.

Maðurinn mætti í apótek Apótekarans í Vallakór í gær um hálfeitt og ógnaði starfsfólki með dúkahníf og hafði á brott með sér lyf. Var hans leitað, en upp úr klukkan fjögur hafði lögreglan haft hendur í hári hans. Engan sakaði í ráninu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert