Þrír karlmenn hafa verið ákærðir í umfangsmiklu máli sem snýr að framleiðslu og sölu fíkniefna, meðal annars svokölluðu DMT ofskynjunarlyfi.
Eru þeir allir ákærðir fyrir framleiðslu á samtals 228 gr. af DMT efninu og 1.827 ml af sama efni. Fór framleiðslan fram í iðnaðarbili en einnig fundust efnin í íbúð. Var það á tímabilinu 20. nóvember í fyrra til 3. desember.
Einn hinna ákærðu er jafnframt ákærður fyrir að hafa haft í fórum sínum 2.605 ml af vefaukandi steralyfjum og 1.374 stk. af sömu sterum.
Annar hinna ákærðu er ákærður fyrir að hafa haft í fórum sínum 80 grömm af kókaíni og sá þriðji fyrir að hafa haft nokkur grömm af amfetamíni og kannabisefnum auk 27 kannabisplantna. Eru þeir tveir fyrrnefndu taldir hafa ætlað að selja og dreifa efnunum.
Fram kom í fréttum þegar málið kom upp að á annan tug húsleita hefðu verið framkvæmdar á höfuðborgarsvæðinu vegna málsins og voru þær sagðar liður í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi. Var meðal annars leitað aðstoðar pólskrar lögregluyfirvalda og Europol.
DMT (N,N-Dímethýltryptamín) er ofskynjunarefni sem m.a. er að finna í suður-ameríska seyðinu Ayahusca sem ættbálkar í Amazon skóginum hafa notað um árabil í athöfnum.