Sólveig Anna segir af sér

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sólveig Anna Jónsdóttir ætlar að segja af sér sem formaður Eflingar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hún birti nú fyrir stundu á Facebook-síðu sinni.  

Hún greinir frá því að fréttamaður á RÚV hafi haft samband við hana á fimmtudaginn til að spyrja hana um texta frá trúnaðarmönnum á skrifstofu Eflingar, sem þeir samþykktu 9. júní. Þar hafi hún m.a. verið sökuð um að halda „aftökulista“ og um að fremja grafalvarleg kjarasamningsbrot gegn starfsfólki á borð við fyrirvaralausar uppsagnir. 

Segir Sólveig að sér hafi verið brugðið yfir þessum texta, sem væri ekki sannleikanum samkvæmur og að sínu mati skrifaður af miklu dómgreindarleysi. Hafi hún falið öðrum stjórnendum að bregðast við, og hafi það verið gert hratt og faglega, og málinu sagt lokið af hálfu trúnaðarmanna.  

Sólveig Anna segir svo frá að Guðmundur Baldursson, stjórnarmaður í Eflingu, sem hún segir hafa lengi verið uppsigað við félagið, hafi fengið veður af tilvist ályktunarinnar frá í júní og krafist þess að hún yrði afhent. Því hafi verið neitað þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hans.  

„Fremur en að sætta sig við lög og leikreglur síns eigin félags og verkalýðshreyfingarinnar, ákvað Guðmundur að fara með starfsmannamál skrifstofu Eflingar í fjölmiðla og er það ástæða þess að fréttamaður hafði samband við mig á fimmtudaginn eins og áður sagði. 

„Eftir að hafa fengið póst frá fréttamanni ákvað ég að ávarpa starfsfólk Eflingar í upphafi vinnudags á föstudaginn síðasta, en búið var að ákveða starfsmannafund á þeim tíma. Ég sagði við starfsfólk á þessum fundi að það væru tveir kostir í stöðunni. Annaðhvort kæmi eitthvað skriflegt frá þeim sem myndi bera til baka ofstækisfullar lýsingar úr ályktun trúnaðarmanna og orð sem fréttamaður notaði um „ógnarstjórn“, eða að ég myndi segja af mér formennsku í félaginu,“ segir m.a. í yfirlýsingu Sólveigar Önnu.  

Hún segir það ekki hafa verið auðvelda ákvörðun fyrir sig að stilla málum upp með þeim hætti, en að það hafi verið óhjákvæmilegt. „Starf mitt með félagsfólki Eflingar, sem er réttlætisbarátta varðandi kjör og aðstæður verkafólks á vinnustöðum, hefur ekki trúverðugleika ef trúnaðarmenn starfsfólks Eflingar eru tilbúnir að fullyrða að ég reki hér vinnustað jafn slæman eða verri en þeir sem við höfum sjálf gagnrýnt.“ 

Segir hún jafnframt að mikil orka og tími hafi farið í að verjast ásökunum sem þessum. Þá hafi hún lýst því fyrir starfsmönnum félagsins að skaðinn sem þetta myndi valda yrði mikill fyrir baráttu félagsins og hagsmuni félagsmanna. Hún myndi aldrei geta borið til baka sjálf þessar ásakanir, enda væru þær settar fram af trúnaðarmönnum vinnustaðarins í nafni starfsfólks. Starfsfólkið eitt gæti því borið þær til baka.  

Segir ályktanirnar vantraustsyfirlýsingu 

Greinir Sólveig Anna að hún hafi við það vikið af fundi ásamt öðrum stjórnendum, og gáfu starfsmenn sér tíma fram að hádegi til að bregðast við. Samþykktu starfsmenn þar tvær ályktanir, eina til stjórnenda Eflingar og aðra sem send var til RÚV.  

„Í þessum ályktunum kemur fram afdráttarlaus staðfesting á þeim orðum sem var að finna í ályktun trúnaðarmanna frá í júní. Talað er á þeim nótum að alvarleg vandamál séu viðvarandi sem þurfi að leysa með fundahöldum og öðru. Krafist er aukins valds fyrir trúnaðarmenn vinnustaðarins og tíðari vinnustaðafunda, þar sem möguleg vanlíðan einstakra starfsmanna verði fundarefni. Í yfirlýsingu til RÚV er jafnframt engin tilraun gerð til að bera til baka ásakanir um ógnarstjórn. Ályktanirnar eru vantraustsyfirlýsing til mín og til allra þeirra sem bera ábyrgð á starfsmannamálum vinnustaðarins,“ segir Sólveig Anna í yfirlýsingu sinni.  

„Andstæðingar félagsins og þeirrar stefnu sem ég og stjórn félagsins hafa markað í baráttu verka- og láglaunafólks eru því miður margir. Með ákvörðun starfsfólks Eflingar sl. föstudag um að standa staðfastlega við ýktar og ósanngjarnar lýsingar trúnaðarmanna á vinnustaðnum sem ég ber ábyrgð á hefur starfsfólk í reynd gefið samþykki sitt fyrir áframhaldandi neikvæðri umfjöllun og umræðu sem gerir mér illmögulegt að leiða baráttu félagsfólks,“ segir Sólveig Anna í yfirlýsingu sinni og bætir við að hún kjósi að berskjalda sig ekki fyrir slíka útreið enn á ný, með tilheyrandi skaða fyrir baráttu Eflingar og Eflingarfélaga. 

„Fremur kýs ég að hlíta þeirri afdráttarlausu vantraustsyfirlýsingu sem starfsfólk Eflingar hefur sent mér, félaginu og fjölmiðlum, sem gera starf mitt ómögulegt. Ég get ekki gegnt stöðu formanns í félaginu að svo komnu máli og hef ég tilkynnt stjórn Eflingar um afsögn mína.“ 

Sólveig Anna segir að sér þyki það ótrúlegt að það sé starfsfólk Eflingar sem í reynd hreki hana úr starfi, með því að leyfa andstæðingum félagsins að „hossa sér á ýkjum, lygum og rangfærslum um mig og samverkafólk mitt. Starfsfólk Eflingar hefur kosið að svipta mig því vopni sem hefur gert mér mögulegt að leiða sögulega og árangursríka baráttu verka- og láglaunafólks síðustu ár, mannorði mínu og trúverðugleika.“ 

Sólveig Anna segist vera full þakklætis yfir að hafa verið treyst af félagsfólki Eflingar til að leiða baráttu þeirra og er hún ótrúlega stolt af þeim magnaða árangri sem náðst hafi á þeim stutta tíma sem hún hafi verið formaður félagsins. „Barátta Eflingarfélaga undanfarin ár hefur sýnt og sannað að með krafti og samstöðu vinnuaflsins þá náum við árangri. Með þau vopn í höndum getum við tekist á við allan mótbyr sama hversu óheiðarlegir og ómerkilegir andstæðingar okkar eru, hvar sem þeir leynast.“ 

Þá segir Sólveig að lokum að hún muni aldrei „hætta í baráttu fyrir réttlæti fyrir okkur sem tilheyrum stétt verka- og láglaunafólks og þekkja lífið undir oki auðvaldskerfisins og láglaunastefnunnar“. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert