Bíða eftir hlaupi úr Grímsvötnum

Í forgrunni sjást Grímsvötn og þverhníptir hamrar Grímsfjalls.
Í forgrunni sjást Grímsvötn og þverhníptir hamrar Grímsfjalls. mbl.is/RAX

Engin merki eru um að hlaup sé hafið í Grímsvötnum ennþá. Grannt er þó fylgst með þróun mála á svæðinu. Þetta segir Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

„Það er bara sama staða og var uppi í gærkvöldi. Við erum ekki farin að sjá neitt í ánum eða neitt þannig við bíðum bara ennþá eftir því.“

Telja hlaup líklegt í dag eða á morgun

Vísindaráð almannavarna fundaði um stöðuna í Grímsvötnum í gær þar sem íshellan þar var tekin að síga. 

Það að íshellan sé tekin að síga getur verið vísbending um að Grímsvatnshlaup sé í vændum og dæmi eru um að eldgos verði í Grímsvötnum eftir að vatn hleypur þaðan.

Í kjölfar fundarins var gefin út tilkynning á vef Veðurstofunnar þar sem segir að allar líkur séu á því að vatn sé farið að streyma úr Grímsvötnum og að von sé á hlaupi í Gígjukvísl. Þar segir einnig að íshellan í Grímsvötnum hafi sigið 60 sentímetra á síðustu dögum og hraðinn aukist.

Engin aukning mælst í rafleiðni við Gígjukvísl

Of snemmt sé þó að fullyrða um hvert umfang hlaupsins geti orðið en miðað við mælingar á vatnsstöðunni í Grímsvötnum í gær má reikna með að hámarksrennsli þess verði um 5.000 m3/s. Slíkt rennsli hefði lítil áhrif á mannvirki á borð við vegi og brýr.

Miðað við fyrri hlaup megi gera ráð fyrir að hlaupvatn komi fram við jökuljaðar í dag eða á morgun og muni það ná hámarki á 4 til 8 dögum eftir það, að því er greint frá í tilkynningunni.

Engin aukning hafi mælst í rafleiðni í Gígjukvísl eð það er skýrasta merki þess að hlaupvatn sé komið undan jöklinum. Veðurstofa er með gasmæla við upptök Gígjukvíslar sem einnig gæfu vísbendingar um hvort hlaupvatn sé í farveginum og er því grannt fylgst með þróun mála á svæðinu. 

Síðast hljóp úr Grím­svötn­um í júní 2018 en ekki hef­ur gosið úr þeim síðan 2011.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert