Konan sem lést var á sjötugsaldri

Bæði sjúkrabíll og lögregla voru kölluð á vettvang í gær.
Bæði sjúkrabíll og lögregla voru kölluð á vettvang í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vegfarandinn sem lést í gærmorgun í umferðarslysi nærri gatnamótum Skeiðarvogs og Gnoðarvogs var kona á sjötugsaldri af erlendum uppruna. Þetta staðfestir Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan vinnur nú að því að setja sig í samband við aðstandendur hennar erlendis.

Greint var frá því í gær að banaslys hefði orðið þegar strætó ók á gangandi vegfaranda. Bæði lögregla og sjúkrabíll voru kölluð á vettvang og var konan flutt á sjúkrahús.

Lögregla veitir ekki frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu, en lög­regl­an á höfuðborgarsvæðinu og rann­sókn­ar­nefnd sam­göngu­slysa rann­saka til­drög slyss­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert