Forsetinn verðlaunaði Controlant og Baltasar

Forseti Íslands veitir Baltasar Kormáki verðlaunin.
Forseti Íslands veitir Baltasar Kormáki verðlaunin. mbl.is/Unnur Karen

Fyrirtækið Controlant hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2021. Gísli Herjólfsson, forstjóri fyrirtækisins veitti verðlaununum viðtöku við fámenna athöfn á Bessastöðum. 
Við sama tilefni var Baltasar Kormákur, kvikmyndaframleiðandi og leikstjóri, heiðraður fyrir störf sín á erlendri grund.

Fram kemur í tilkynningu, að hug- og vélbúnaður Controlant tryggi gæði viðkvæmra vara í flutningi og dragi úr sóun á lyfjum og matvælum. Controlant gefi framleiðendum lyfja og matvæla mikilvægar rauntímaupplýsingar um hitastig, raka og staðsetningu sem fáist með nettengdum gagnaritum. Áralöng fjárfesting í tækniþróunarstarfi sé að skila sér um þessar mundir í hröðum vexti tekna og nái starfsemin til næstum 200 landa.

Gísli Herjólfsson forstjóri Controlant veitti verðlaununum viðtöku.
Gísli Herjólfsson forstjóri Controlant veitti verðlaununum viðtöku. mbl.is/Unnur Karen

Vaktað um tvo milljarða skammta

Viðskiptavinir fyrirtækisins eru lyfja- matvæla- og flutningsfyrirtæki um allan heim. Flestir koma þó úr röðum lyfjaiðnaðarins, enda er stærsta hlutverkið í dag að vakta dreifingu á bóluefni gegn Covid-19 og tryggja þannig að bóluefnið komist á öruggan hátt til heimsbyggðarinnar, í samstarfi við mörg af stærstu lyfjafyrirtækjum heims.

„Vöktun allan sólarhringinn stuðlar að því að hægt er að grípa inn í, forða verðmætri vöru frá skemmdum og koma þannig í veg fyrir sóun. Þetta hefur gengið vel og hefur árangurinn í dreifingu bóluefnis Pfizer vakið mikla athygli í lyfjageiranum en 99,998% bóluefnisins komst heilt á húfi á áfangastað. Nú þegar hefur fyrirtækið vaktað um tvo milljarða bóluefnaskammta sem hafa verið sendir til nærri 200 landa,“ segir í tilkynningunni

„Fjárfesting í tækniþróun hefur skilað sér í hröðum vexti hjá Controlant. Fjöldi starfsmanna hefur margfaldast á skömmum tíma. Í lok ársins 2019 störfuðu rétt rúmlega 50 manns hjá fyrirtækinu, en í árslok 2021 verða starfsmenn orðnir 350. Langstærsti hlutinn starfar á Íslandi en einnig er fyrirtækið með starfsemi í Bandaríkjunum, Írlandi, Bretlandi, Hollandi, Póllandi, Þýskalandi og Sviss. Ársveltan fyrir 2019 nam tæplega 400 milljónum króna. Má áætla að veltan fyrir árið 2021 verði á bilinu 7 til 8 milljarðar króna.

Controlant hefur skipað sér mikilvægan sess á heimsvísu í því risastóra verkefni og áskorunum sem Covid-19 felur í sér. Fram undan hjá fyrirtækinu er áframhaldandi uppbyggingarstarf á erlendum mörkuðum og liggja tækifærin víða, til að mynda innan matvælageirans.“

Baltasar Kormákur hlýtur heiðursviðurkenningu

Samhliða afhendingu Útflutningsverðlaunanna var Baltasar Kormáki, kvikmyndaframleiðanda, leikstjóra, leikara, með meiru, veitt heiðursviðurkenning fyrir eftirtektarverð störf á erlendri grundu. Meðal fyrri verðlaunahafa eru m.a. frú Vigdís Finnbogadóttir, Helgi Tómasson listdansstjóri og Björk.

Baltasar útskrifaðist sem leikari frá Listaháskóla Íslands árið 1990 og hóf þá störf hjá Þjóðleikhúsinu þar sem hann lék í og leikstýrði sýningum næstu árin. Snemma á ferlinum hóf hann að framleiða og leikstýra eigin sjálfstæðum kvikmyndaverkefnum. 101 Reykjavík kom út árið 2000 og var fyrsta verkefnið sem kom honum á kortið erlendis, en kvikmyndin vann til verðlauna á hinum ýmsu kvikmyndahátíðum, auk þess að koma Baltasar á lista Variety yfir topp 10 leikstjóra til að fylgjast með.

Baltasar Kormákur, kvikmyndaframleiðandi og leikstjóri, var heiðraður fyrir störf sín …
Baltasar Kormákur, kvikmyndaframleiðandi og leikstjóri, var heiðraður fyrir störf sín á erlendri grundu. mbl.is/Unnur Karen

Tekið virkan þátt í uppbyggingu

Meðal kvikmynda sem hann hefur framleitt eru A Little Trip to Heaven, Mýrin, Brúðguminn, Djúpið og Eiðurinn sem hafa allar fengið mjög góðar viðtökur á Íslandi sem og erlendis. Þá hefur Baltasar leikstýrt og framleitt erlendar kvikmyndir, má þar nefna myndirnar Everest, Contraband og 2 Guns, að því er segir í tilkynningunni.

Baltasar byrjaði snemma að einbeita sér að framleiðslu, skrifum og leikstjórn kvikmynda. Hann stofnaði fyrirtækið Blueeyes Production árið 1999. Árið 2012 setti hann síðan á laggirnar framleiðslufyrirtækið RVK Studios sem tók yfir kvikmyndaframleiðsluna hjá móðurfélaginu Blueeyes og byrjaði að framleiða sjónvarpsþætti fyrir alþjóðamarkað. Fyrsta þáttaröðin af þremur í Ófærð kom út árið 2016 og fór í sýningu víða um heim. Árið 2020 framleiddi Baltasar þáttaröðina Kötlu í samstarfi við Netflix og frumsýnd var fyrr á þessu ári. Þættirnir voru ofarlega á vinsældalista Netflix og vöktu athygli fyrir áhugaverða sögu, og ekki síst fyrir fallegt landslag Íslands sem fékk að njóta sín.

Baltasar er langt í frá hættur að setja mark sitt á kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð hér heima og heiman. Síðustu árin hefur hann tekið virkan þátt í uppbyggingu hins íslenska kvikmyndaþorps í Gufunesi í Reykjavík, meðal annars með opnun kvikmyndavers með þremur stúdíó-rýmum, segir enn fremur í tilkynningu.

Guðni Th. Jóhannesson, Baltasar Kormákur og Hildur Árnadóttir, formaður stjórnar …
Guðni Th. Jóhannesson, Baltasar Kormákur og Hildur Árnadóttir, formaður stjórnar Íslandsstofu. mbl.is/Unnur Karen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert