Ragga Rix vann Rímnaflæði

Ragga Rix sigurvegari Rímnaflæðis.
Ragga Rix sigurvegari Rímnaflæðis. Ljósmynd/Aðsend

Akureyringurinn Ragnheiður Inga Matthíasdóttir er sigurvegari Rímnaflæðis árið 2021. Hin 13 ára gamla Ragnheiður eða Ragga Rix keppti fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Tróju og flutti hún lagið sitt „Mætt til leiks“. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Í öðru sæti var Þorsteinn Michael Guðbjargarson frá félagsmiðstöðinni Þrumunni í Grindavík með lagið sitt „Lil Stony“. Það var svo George Ari Devos, Kzobafrá félagsmiðstöðinni Gleðibankanum í Reykjavík sem hlaut titilinn Efnilegasti rapparinn 2021.

Þorsteinn Michael.
Þorsteinn Michael. Ljósmynd/Aðsend

Ragna Kjartansdóttir, betur þekkt sem rapparinn Cell7, tilkynnti sigurvegara Rímnaflæði og Efnilegasta rapparann 2021 á samfélagsmiðlum Samfés fyrr í kvöld.

George Ari.
George Ari. Ljósmynd/Aðsend

Kom ekki til greina að aflýsa viðburðinum

Segir í tilkynningu að Rímnaflæði, rappkeppni unga fólksins sem fyrst var haldin í Miðbergi árið 1999, sé svo sannarlega stökkpallur fyrir unga og efnilega rappara úr félagstöðum víðsvegar að af landinu. Þá segir að það hafi ekki komið til greina að fresta eða aflýsa viðburðinum vegna hertra sóttvarnaaðgerða. Frekar hafi verið brugðið á það ráð að halda Rímnaflæði á netinu í samstarfi við UngRúv og Dominos.

Við viljum þakka öllum sem horfðu á frábær atriði keppenda og tóku þátt í netkosningunni. Hægt er að sjá viðtal við sigurvegara frá síðasta ári og öll atriði keppenda á vef UngRúv. Allir keppendur fá tækifæri til að koma fram á Landsmóti Samfés sem haldið verður á Hvolsvelli. Sigurvegari Rímnaflæðis og Efnilegasti rapparinn koma fram á SamFestingnum í Laugardalshöll fös. 25. mars 2022,“ segir í tilkynningunni.

Þá er keppendum óskað innilega til hamingju með frábæra frammistöðu og glæsileg myndbönd. „Það er ljóst að framtíðin í rappinu er björg og eru margir efnilegir rapparar að stíga sín fyrstu skref.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert