24 sjúklingar liggja á Landspítalanum vegna Covid-19 og er meðalaldur þeirra 65 ár. Fimm eru á gjörgæslu, þar af fjórir í öndunarvél.
Tveir þeirra sem eru á gjörgæslu eru óbólusettir.
1.372 sjúklingar, þar af 407 börn, eru á Covid-göngudeild spítalans, að því er segir í tilkynningu.
Frá upphafi fjórðu bylgju hafa 215 verið lagðir inn vegna Covid-19 á Landspítala.