Alls greindust 120 með kórónuveiruna innanlands síðasta sólarhringinn, þar af voru 68 óbólusettir. 54 voru í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á Covid.is. 10 greindust á landamærunum.
Nú eru 1.323 í einangrun, sem er álíka mikið og í gær. 1.687 eru í sóttkví, sem eru 85 færri en í gær.
Hátt í 5.000 sýni voru tekin.