Nýir veikleikar uppgötvuðust um helgina

AFP

Um helgina uppgötvuðust nýir veikleikar í Log4j-kóðasafninu sem rekstraraðilar þurfa að bregðast við. Enn er mikið um tilraunir til árása sem byggja á veikleikanum. Í ljósi þessara upplýsinga ríkir áfram óvissustig almannavarna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. 

Þar segir, að áfram verði fylgst náið með þróun veikleikans og mögulegum áhrifum. Rekstraraðilar bregðast við nýjum upplýsingum eftir því sem þær berast og miðað við tilefni, segir ennfremur. 

„Allir ómissandi innviðir og þjónusta starfa eðlilega og eru ekki skert eða takmörkuð á þessum tímapunkti. Ekkert atvik hefur verið tilkynnt þar sem brotist hefur verið inn í kerfi með Log4j veikleika,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert