1.143 innanlandssmit í gær

Frá bólusetningu barna, 5-11 ára , í Laugardalshöll gegn kórónuveirunni.
Frá bólusetningu barna, 5-11 ára , í Laugardalshöll gegn kórónuveirunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alls greindust 1.143 með kórónuveiruna innanlands í gær. 57 greindust á landamærunum. 575 voru í sóttkví við greiningu.

8.400 manns eru í einangrun og 11.727 í sóttkví, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavörnum.

Fjöldi PCR-sýna sem tekin voru í gær kemur fram á covid.is þegar heimasíðan verður uppfærð á mánudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert