1.383 kórónuveirusmit greindust innanlands síðastliðinn sólarhring. 48% prósent voru í sóttkví við greiningu. Nýgengi innanlandssmita er 4.239 og hækkar lítillega á milli daga. Það stóð í 4.210 þegar tölur voru kynntar í gær.
Þetta kemur fram á Covid.is.
Alls voru 7.676 sýni greind síðastliðinn sólarhring, þar af 5.377 einkennasýni.
66 kórónuveirusmit greindust við landamærin en þar voru 857 sýni greind. Nýgengi landamærasmita er 452.
39 eru á spítala með Covid-19. Þar af eru þrír á gjörgæslu, allir í öndunarvél.