Dularfull sprenging í Hvalfirði

Íbúar heyrðu í sprengingunni og mældist lítill skjálfti á mælum …
Íbúar heyrðu í sprengingunni og mældist lítill skjálfti á mælum Veðurstofunnar. mbl.is/Hari

Skjálfti að stærðinni 1,0 mældist í Hvalfirði klukkan 18.24 í kvöld, að sögn vaktahafandi veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Ekki er vitað hvað olli skjálftanum en óalgengt er að skjálftar mælist á þessu svæði. Rúv greindi fyrst frá

Sprengingin var til umræðu á Facebook-síðu íbúa í Kjósarhreppi þar sem fjöldi fólks sagðist hafa orðið var við sprenginguna. „Já, ég heyrði mikinn dink,“ skrifar einn, og annar: „Já, ég hélt að einhver væri mættur í hlaðið með læti“. Lýsir fólk ýmist skelli eða drunum. 

Stjörnu-Sævar segist á Twitter ekki hafa fengið tilkynningu um vígahnött svo það væri ósennileg skýring en einnig hefur enginn sagst sjá ljósblossa á himni. Sprengingin var í kvöld tilkynnt til almannavarna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka