Á Landspítala liggja nú 35 sjúklingar með eða vegna kórónuveirunnar. Fjórir eru á gjörgæslu og þrír þeirra í öndunarvél. Það fjölgar því á gjörgæslu um einn milli daga.
Þetta kemur fram á vef Landspítala.
Alls eru 9.117 sjúklingar í eftirliti Covid-göngudeildar Landspítala, þar af 3.275 börn. Sýktir starfsmenn spítalans eru nú 200.