Mun færri grunnskólabörn hafa skilað sér í seinni bólusetninguna gegn Covid-19, að sögn Sigríðar Jóhönnu Sigurðardóttur, verkefnastjóra hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Hún segir greinilegt að afföll vegna veikinda meðal barnanna hafi haft mikil áhrif á mætinguna en starfsfólk heilsugæslunnar hafi fengið upplýsingar um mörg tilfelli kórónuveirusmita í þeim hópi sem var boðaður í vikunni.
Meira en þrjár vikur eru liðnar frá því að bólusetningar barna á aldrinum fimm til ellefu ára gegn Covid-19 hófust í Laugardalshöll með skipulögðum hætti. Á mánudaginn hófust því bólusetningar með seinni skammti bóluefnis fyrir þann aldurshóp.
Í dag fengu hátt í 1.300 grunnskólabörn sinn annan skammt af bóluefni en það eru mun færri en þeir sem fengu sinn fyrsta skammt á sama degi fyrir þremur vikum, að sögn Sigríðar.
Verður hlutfall milli þeirra sem fengu sinn fyrsta og annan skammt af bóluefni gert upp í lok vikunnar.
Þá hefur mæting í örvunarskammt einnig verið dræm en heilsugæslan hefur verið að senda þeim sem ekki hafa fengið þriðja skammtinn boð um að mæta. Í dag hafa þó einungis um 400 mætt, sem er um 20-30% af fjöldanum sem var boðaður.
Sigríður segir þó bólusetningarnar almennt hafa gengið vel og var dagurinn nokkuð rólegur og góður.