Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar og forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, telur tillögu sem Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í borginni, lagði fram í skipulagsráði í morgun þar sem nafnanefnd er falið að breyta heiti Garðastrætis í Kænugarðsstræti, gerða af góðum hug.
Hann segir að tillögunni hafi verið frestað, eins og oft sé gert þegar tillögur koma beint inn, en að hún verði tekin fyrir á næsta fundi. Pawel vildi ekki lýsa endanlegri afstöðu sinni til málsins fyrr en það hefur verið tekið fyrir.
Hann segist sjálfur telja að vel fari á því að gert sé meira af því að skýra götur eftir vinaborgum og vinaþjóðum Íslands.
„Ég veit að allar höfuðborgir í Eystrasaltsríkjum eru með annaðhvort Íslands eða Reykjavíkurstræti hjá sér og mér þætti líka fara vel á því að við myndum launa það vináttumerki og hafa sambærilegar götur hér,“ segir Pawel í samtali við mbl.is.