Í viðbragðsstöðu vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu

Flóttamenn bíða í röðum við landamæri Úkraínu og Póllands.
Flóttamenn bíða í röðum við landamæri Úkraínu og Póllands. AFP

Ríkislögreglustjóri hefur virkjað viðbragðsáætlun vegna yfirálags á landamærum frá óvissustigi yfir á hættustig í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. 

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að síðan 24 febrúar hafi 107 einstaklingar með tengsl við Úkraínu sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi. Þessar tölur eru birtar með fyrirvara um að fleiri umsóknir hafi borist á vinnslutíma tilkynningar lögreglu, en lögreglan hefur fundið fyrir umtalsverðir aukningu á umsóknum um alþjóðlega vernd frá því að stríð braust út í Úkraínu. Heildarfjöldi einstaklinga sem hafa sótt um vernd frá 1 janúar 2022 til 8. mars er 353. 

Með virkjun viðbragðsáætlunar á hættustig eru virkjuð tæki, tól og aðstoð til þess að taka sem best á móti stærri hópum af fólki í neyð. Viðbragðsáætlunin gerir til dæmis ráð fyrir þeim möguleika að opna fjöldahjálparstöð.

„Ljóst er að þeim einstaklingum sem leita skjóls á Íslandi mun fjölga verulega vegna aðstæðna í Úkraínu og er virkjun þessa hættustigs liður í því að taka sem best á móti þessum hópi og öðru fólki sem óskar eftir alþjóðlegri vernd. 44.grein útlendingalaga hefur verið virkjuð sem að auðveldar ferlið við móttöku á þeim einstaklingum sem hafa tengsl við Úkraínu,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert