Óeining í ríkisstjórn um bankasölu

Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála, viðskipta og menningar.
Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála, viðskipta og menningar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég var ekki hlynnt þeirri aðferðafræði sem varð ofan á við söluna á bréfum í Íslandsbanka. Vildi almennt útboð en ekki að bréfin yrðu seld til valins hóps fjárfesta. Þessum sjónarmiðum mínum kom ég skýrt á framfæri í aðdraganda útboðsins,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokks, í samtali við Morgunblaðið.

Vanda þurfti til verka

Mikil umræða á sér nú stað um sölu á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka sem gekk í gegn á dögunum. Selt var hlutafé fyrir 450 millj. kr. að nafnvirði á genginu 119. Nokkrir þeirra fjárfesta sem áttu þess kost að kaupa bréf hafa þegar selt þau á hærra gengi og innleyst hagnað með því móti. Hverjir nákvæmlega áttu þess kost að kaupa hlutafé hefur verið gagnrýnt, en sú leið sem farin var, var tillaga Bankasýslu ríksins. Skiptar skoðanir eru einnig um málið innan ríkisstjórnarflokkanna.

Lilja Alfreðsdóttir minnir á að Íslandsbanki hafi á sínum tíma komið í hlut ríkissjóðs Íslands sem partur af stöðugleikaframlögunum svonefndu, sem öfluðu ríkissjóði rúmlega 700 milljarða króna.

„Það var alltaf ljóst í mínum huga að ríkið yrði ekki með um 67% eignarhald á íslenskum fjármálamarkaði. Því þurfti að selja hlut ríksins í Íslandsbanka, en vanda til verka í ljósi fjármálahrunsins. Ég hef alltaf talið skynsamlegt að taka lítil og hægfara skref. Hafa vaðið fyrir neðan sig. Ekki einblína á verð, heldur gæði framtíðareigenda. Önnur leið var hins vegar valin og því miður er fátt sem kemur á óvart í þessu máli og hver útkoman varð,“ segir Lilja, sem auk viðskipta hefur ferðamál á sinni könnu í ríkisstjórn. Jafnframt sem hún situr í ráðherranefnd um efnahagsmál. Þar hafi komið fram að ríkissjóður sé í góðri stöðu um þessar mundir. Ekkert hafi því kallað á asa við sölu á bréfum í Íslandsbanka. Ferðamannasumarið líti einnig vel út, sem gefi væntingar um að staða ríkissjóðs styrkist fljótt.

„Miðað við aðstæður og umræðuna nú tel ég að hægja verði á einkavæðingunni. Í mínum huga er líka alveg ljóst að Landsbankinn skuli vera áfram í eigu þjóðarinnar. Sala á honum kemur ekki til greina.“

Í ljósi gagnrýni á bankasöluna nú segir Lilja brýnt að Ríkisendurskoðun skoði mál: framkvæmd og aðferðir. Einnig kunni að vera rétt að fela fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands að fara yfir málið.

Ábyrgðin stjórnmálamanna

„Í fyrsta útboðinu á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka gekk vel, það er að bjóða almenningi að kaupa hluti. Þá leið hefði ríkissjóður einnig átt að fara nú. Evróputilskipun fylgir hins vegar sú kvöð að ekki var hægt að fara í annað almennt útboð eins og sakir standa. Slíkt hefði þurft að bíða, sem hefði verið í góðu lagi. Ég er þó ekki á því að hægt sé að skella skuldinni alfarið á stjórnendur Bankasýslunnar og þykir miður að málið sé einfaldað þannig. Ábyrgðin hlýtur að vera stjórnmálamanna sem tóku ákvörðun í málinu,“ segir Lilja.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert