20% óku of hratt í Hamrabergi

Lögreglan að störfum.
Lögreglan að störfum. Ljósmynd/Lögreglan

Brot 48 ökumanna voru mynduð í Hamrabergi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamraberg í suðurátt, að Hnotubergi.

Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 245 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54. Skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Vöktun lögreglunnar í Hamrabergi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert