Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, veitti Þjóðkirkjunni í dag 10 milljón króna styrk svo að kirkjan geti veitt aðstandendum fanga þjónustu, stuðning og ráðgjöf.
Þetta kemur fram í frétt á vef Stjórnarráðsins.
Biskupsstofa mun hafa umsjón með verkefninu og ráða fjölskylduráðgjafa sem mun kortleggja þörf fyrir þjónustu af þessu tagi. Leggur Biskupsstofa upp með að þjónustan verði aðgengileg aðstandendum fanga um allt land. Verður verkefnið unnið í samstarfi við lögreglu, fangelsismálastofnun, presta og aðra sem geta haft milligöngu um að benda á þjónustuna.
Fjölskyldu- og sálgæsluþjónusta kirkjunnar mun útvega húsnæði fyrir þjónustuna og er hennar verkefni að tryggja faglegt starfsumhverfi.
Að sögn Guðmundar Inga er þetta mikið ánægjuefni og að hans mati er um að ræða mikilvægt verkefni.
„Það getur verið gríðarlegt áfall þegar einstaklingur er handtekinn, jafnvel inni á heimili sínu, að viðstöddum fjölskyldumeðlimum. Hinn grunaði er fjarlægður og eftir sitja aðstandendur sem vita oft ekki hvernig þeir geta unnið úr áfallinu,“ bendir Guðmundur á í tilkynningu.