„Almennt er það þannig að sá sem á réttindi að myndverki á auðvitað einkarétt á því að birta það opinberlega og gera af því eintök,“ segir Erla S. Árnadóttir, hæstaréttarlögmaður hjá Lex og sérfræðingur á sviði hugverkarétta, í samtali við mbl.is.
Í gær var greint frá því að íslenski listamaðurinn Odee hafi notað list annarra til að skapa nýjar umbúðir fyrir Opal sem selt er til styrktar Einstökum börnum.
Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Nóa Síríus, sagði í samtali við mbl.is að fyrirtækið hafi ekki vitað að listin væri ekki eign Odee.
„Ef að upprunalegu myndirnar þekkjast í þessum myndum þá er þetta gerð eintaks af þeim myndum sem er háð einkarétti höfundarins. Til þess að nýta þær með þessum hætti þá hlýtur að þurfa leyfi frá þeim höfundi, hvort sem þær eru notaðar óbreyttar eða breytt aðeins,“ segir Erla.
Spurð hvort einhverju máli skipti að Odee sé að gefa vinnuna sína og græði ekki fjárhagslega á þessu verkefni segir Erla það ekki skipta máli.