Ekkert landris í 3 til 4 daga

Þessi mynd sýnir einmitt afmörkun á kvikuhreyfingum frá því í …
Þessi mynd sýnir einmitt afmörkun á kvikuhreyfingum frá því í janúar 2020. Ljósmynd/ Veðurstofa Íslands

Verulega hefur dregið úr landrisi á svæðinu vestur af Þorbirni frá 26. maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. 

Ekkert landris hefur mælst á GPS-mælum síðustu þrjá til fjóra daga. Eins hefur verulega dregið úr skjálftavirkni á svæðinu.

Óvissustig enn í gildi

Í ljósi þessa hefur fluglitakóða fyrir svæðið færður niður á grænan af gulum. Óvissustig almannavarna er þó ennþá í gildi.

Í tengslum við eldsumbrotin og virknina á Reykjanesskaga hafa vísindamenn unnið líkön út frá skjálftagögnum, GPS gögnum og gervihnattamyndum til að áætla staðsetningu og magn þeirrar kviku sem er á hreyfingu undir jarðskorpunni.

Með þessum líkönum er hægt að áætla hvort kvikan sé að hreyfast lárrétt eða lóðrétt og afmarka möguleg umbrotasvæði, að vissu leyti, ef til eldgoss kæmi.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert