Allt að 20 gráður og sólarglennur á morgun

Eflaust munu margir nýta sér sólina til útiveru á morgun.
Eflaust munu margir nýta sér sólina til útiveru á morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Nokkuð bjart gæti orðið á Suðurlandi í dag og enn bjartara á morgun, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands

Þar segir að norðlæg eða breytileg átt verði í dag og á morgun. Víða verður skýjað og sums staðar væta en þurrt lengst af á vestanverðu landinu. 

„Einhverjar sólar glennur verða þó og jafnvel nokkuð bjart á Suðurlandi, sérstaklega á morgun,“ segir í hugleiðingunum. 

Ekki sami kuldi og um helgina

Þar kemur fram að Vesturlandið beri sigur úr býtum hvað hitastig varðar og verður það allt að 17 gráður. Sunnanlands má reikna með allt að 20 stiga hita á morgun. 

„Eins hlýnar fyrir norðan og austan, en þó ekki eins mikið og verða menn að gera sér að góðu 8 til 15 stiga hita,“ segir í hugleiðingunum sem veðurfræðingurinn lýkur með gleðitíðindum:

„Ekki er að sjá viðlíka kulda í spánum og var um nýliðna helgi.“

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert