Hluta þjóðvegar 1 lokað eftir að húsbílar fóru út af

Slæmt veður og mikill vindur og rigning er á suðurlandinu …
Slæmt veður og mikill vindur og rigning er á suðurlandinu í dag. mbl.is/Ómar Óskarsson

Búið er að loka þjóðvegi 1 á milli Reynisvalla og Freysnes í Öræfasveit sökum veðurs. Þetta kemur fram í færslu lögreglunar á Suðurlandi á Facebook. 

Þar kemur einnig fram að tveir húsbílar séu mikið skemmdir eftir að hafa fokið út af veginum. Að auki er tekið fram að tjón hafi orðið á húsum við Fjallsárlón sökum veðurs. 

Ekki náðist í lögregluna á Suðurlandi við vinnslu fréttarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert