Braust inn á hótelherbergi

Aðili hafði brotist inn á hótelherbergi og var sá grunaði …
Aðili hafði brotist inn á hótelherbergi og var sá grunaði handtekinn á vettvangi og vistaður í fangageymslu lögreglunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan var kölluð út vegna tilkynningar um húsbrot. Þar hafði maður brotist inn á hótelherbergi og var sá grunaði handtekinn á vettvangi og vistaður í fangageymslu lögreglunnar. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Þá var ökumaður stöðvaður fyrir of hraðan akstur þar sem bifreið hans mældist á 140 kílómetra hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert