Vara við dreifingu lyfja manna á milli

Lyf eru sögð vera enginn venjulegur varningur.
Lyf eru sögð vera enginn venjulegur varningur. mbl.is/Sverrir

Lyfjastofnun varar við dreifingu lyfja manna á milli, en viðvörunin er sett fram í kjölfar fréttaflutnings um að fólk eigi í samskiptum á samfélagsmiðlum  í því skyni að deila lyfjum sín á milli. Lyfjastofnun bendir á að slíkt sé ekki aðeins ólöglegt, heldur sé það einnig hættulegt. Þetta kemur fram í tilkynningu Lyfjastofnunar.

Í tilkynningunni segir að lyf séu enginn venjulegur varningur og víðast hvar um heiminn gildi lög og reglugerðir til að skýra þær kröfur sem gerðar eru við framleiðslu, dreifingu og geymslu lyfja.

Lyfjastofnanir um heim allan hafi eftirlit með því að þessum kröfum sé fylgt í hvívetna. Bregði eitthvað út af sé gripið til sérstakra ráðstafana.

Lyfjastofnun segir í tilkynningunni að ef fólk deilir lyfjum sín …
Lyfjastofnun segir í tilkynningunni að ef fólk deilir lyfjum sín á milli getur skapast alvarleg hætta. Ljósmynd/Lyfjastofnun

Alvarleg áhætta geti skapast

Þá segir að ef fólk deili lyfjum sín á milli geti skapast alvarleg hætta, sérstaklega ef um ávísanaskyld lyf er að ræða. Slíkum lyfjum er ávísað af lækni til notkunar fyrir tiltekinn einstakling, sem hann hefur metið hvers þurfi með út frá líkamsástandi viðkomandi, hvaða lyf og í hvaða skammti. Lyfið sé því ekki ætlað til notkunar fyrir aðra.

„Þá er þeim sem hafa heimild til að dreifa lyfjum og selja, gert að fylgja skýrum reglum um að þau séu geymd t.d. við það hita- og birtustig sem tiltekið er fyrir hvert lyf. Við miðlun lyfja manna á milli er engan veginn tryggt að þessa hafi verið gætt.

Að auki er óvíst að lyfið sem verið er að afhenda sé það sem sagt er, ekki er með vissu hægt að vita hvað er verið að kaupa eða þiggja. Afar mikilvægt er því að fara að reglum til að nálgast lyf sem þörf er fyrir. Röng notkun lyfs getur skapað mikla hættu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert