Fótbrotnaði á fimmtu hæð

Vinnuslysið átti sér stað á Mýrargötu í dag.
Vinnuslysið átti sér stað á Mýrargötu í dag. Ljósmynd/Aðsend

Vinnuslys varð í dag er maður fótbrotnaði á fimmtu hæð húss við Mýrargötu í miðbæ Reykjavíkur.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var ákveðið að nota körfubíl til þess að sækja manninn vegna framkvæmdanna í húsinu. 

Maðurinn verður fluttur á slysadeild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert