Áfram í haldi vegna alvarlegra brota

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur.

Karlmaður á fertugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald, eða til 13. september, á grundvelli almannahagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegum kynferðis- og ofbeldisbrotum.

Maðurinn, sem var handtekinn í byrjun mánaðarins, er grunaður um að hafa brotið gegn tveimur konum í aðskildum málum á höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina.

Úrskurðurinn hefur verið kærður til Landsréttar, að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu, en hún segir að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert