Helmingur ræktunarinnar skemmdist í næturfrosti

„Ég fór aftur í dag að skoða og það virðist …
„Ég fór aftur í dag að skoða og það virðist hafa frosið aftur síðastliðna nótt þannig að þetta er þriðja frostnóttin sem komið hefur í ágúst hjá okkur.“ Ljósmynd/Aðsend

„Ég myndi segja að alla vega helmingurinn af okkar ræktun hafi skemmst að einhverju leyti en þó ekki að fullu,“ segir Jón Helgi Helgason, kartöflubóndi á Þórustöðum, sunnan við Akureyri, um áhrif næturfrosts á kartöfluuppskeruna.

Greint var frá því snemma í gærmorg­un að jörð hefði frosið víða um land í fyrrinótt, en hiti við jörðu mæld­ist lægst -3,4 gráður. 

Næturfrostið veldur því að akrarnir verða kolsvartir og uppskeran þornar upp. Ágúst er aðaluppsprettutíminn og sagði Markús Ársælsson, kartöflubóndi í Þykkvabæ, í gær að um væri að ræða töluvert mikið tekjutap fyrir bændur.

Grösin mörg hver fallin

„Það er auðvitað ógerlegt að sjá fyrir núna hversu miklar skemmdirnar eru, þó að grösin séu mörg hver fallin,“ segir Jón og bætir við að áhrif skemmdana komi betur í ljós á næstu tveim vikum.

Jón segir vissulega tekjutap af skemmdunum. Hann tekur líka fram að horfurnar hafi ekki verið bjartar fyrir vegna veðurfars undanfarið en mikill kuldi veldur því að vöxturinn verður hægur.

„Kartöflurnar voru þá ekki komnar í þá stærð sem þær hefðu þurft að vera komnar í áður en það kæmi frost,“ segir Jón að endingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert