Hótaði manni með hníf í miðbænum

Fólk virðist í auknu mæli ganga með hnífa í miðbæ …
Fólk virðist í auknu mæli ganga með hnífa í miðbæ Reykjavíkur. Núna um helgina var einstaklingur stunginn í bakið í miðbænum. mbl.is/Ari

Tilkynnt var um einstakling sem hótaði öðrum með hníf í miðbæ Reykjavíkur í dag. Hann var handtekinn og kærður fyrir vopnalagabrot. Þá var brotist inn í bifreið í hverfi 105. 

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu í kvöld.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að sinna tilkynningum um fjúkandi þakplötur og trampólín í Hafnafirði og Garðabæ í óveðrinu í dag. Einnig þurfti að hafa afskipti af fjúkandi trampólíni í austurhluta Reykjavíkur.

Tilkynnt var um ökumann sem sinnti ekki stöðvunarskyldu og ók í hlið annarrar bifreiðar og ók á brott.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert