Vildi inn á skemmtistað með hníf og hnúajárn

Maðurinn reyndi að komast inn á skemmtistað í miðbænum með …
Maðurinn reyndi að komast inn á skemmtistað í miðbænum með hníf og hnúajárn. mbl.is/Ari

Snemma í morgun barst lögreglu tilkynningu um einstakling sem væri að reyna komast inn á skemmtistað í miðbænum með hníf og hnúajárn.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Viðkomandi afhenti lögreglu vopnin og var hann kærður fyrir brot á vopnalögum.

Þá barst lögreglu tilkynning um slagsmál á Ingólfstorgi. Tveir einstaklingar höfðu ráðist á annan sem var með minniháttar áverka eftir árásina. 

Einnig var tilkynnt um aðra líkamsárás á skemmtistað í miðbænum. Þar hafði einstaklingur rifið í hár stúlku og slegið hana í hnakkann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert