Telur 35 þúsund íbúðir raunhæft markmið

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, telur raunhæft að það takist …
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, telur raunhæft að það takist að byggja 35 þúsund íbúðir á næstu tíu árum. mbl.is/Árni Sæberg

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, telur raunhæft að það takist að byggja 35 þúsund íbúðir á næstu tíu árum. Til að það gangi upp þurfi sveitarfélögin þó að vinna talsvert öðruvísi úr málunum en þau hafa gert.

Sem dæmi nefnir hann að lóðaframboð sé einfaldlega ekki nóg og liggur vandinn m.a. í því að sveitarfélögin hafa ekki forræði yfir þeim lóðum sem lóðaskipulag þeirra lýtur að.

„Það er vegna þess að það land er í einkaeigu eða eigu annarra sem ráða því hvenær uppbygging fer fram. Ef horft er nokkra áratugi til baka, þá hafa sveitarfélögin minna um það að segja nú en þá hvenær uppbygging fer fram.“

Sigurður segir sveitarfélögin geta brugðist við þessu með því að brjóta nýtt land undir byggð. Mikilvægt sé að horfa til þess og ekki eingöngu einblína á þéttingu byggðar.

Nánari umfjöllun má nálgast í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert