„Efast um að þetta bann standist lög“

Kirkjufellið í allri sinni dýrð. Ferðafélagið Útivist er ekki sátt …
Kirkjufellið í allri sinni dýrð. Ferðafélagið Útivist er ekki sátt við að allri umferð um fjallið sé bönnuð fram að miðjum júnímánuði á næsta ári. Rax / Ragnar Axelsson

„Við skilj­um al­veg þessa stöðu sem land­eig­end­ur eru í þarna, en telj­um það jafn­framt ekki þeirra að meta aðstæður og hvað þá að banna alla umferð um fjallið,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, formaður stjórnar Ferðafélagsins Útivistar, um bann landeigenda við Kirkjufell á allri umferð um fjallið fram til 15. júní á næsta ári.

Banaslys varð á fjallinu í októbermánuði sem varð til þess að landeigendur tóku þessa ákvörðun til þess að sporna við frekari slysum á fjallinu, ekki síst hjá erlendum ferðamönnum. Þeir virðast síður gera sér grein fyrir hættunni í bröttum hlíðum fjallsins þegar farið er að hausta.

Almannaréttur í náttúruverndarlögum

Í ályktun sem Ferðafélagið Útivist sendi frá sér vegna málsins kemur fram að skilningur sé á áhyggjum landeigenda vegna slysa á fjallinu og ljóst sé að þurfi að grípa til einhverra aðgerða. Bann við umferð á fjallinu sé hins vegar ekki talin lausnin. Stjórn Útivistar vill líka minna á almannaréttinn sem fjallað er um í náttúruverndarlögum. Bann landeiganda við göngu á fjallið sé ekki í samræmi við lög um almannarétt.

„Ég efast um að þetta bann standist lög,“ segir Gylfi. Það sé jafnframt ljóst að enginn sé að fara að fylgja eftir þessu banni. „Síðan er það fáránlegt að banna vönum göngumönnum og hópum að fara á Kirkjufellið og ekkert hægt að bera það saman við óvana göngumenn og illa búna," segir hann. 

Áskorun með aukinni ferðaþjónustu

„Það er áskorun sem við stöndum frammi fyrir með þessari miklu uppbyggingu í ferðaþjónustu á landinu. Það þurfa að vera meiri upplýsingar um hvar hætturnar leynast sem er víða, og ekki bara á Kirkjufellinu og í Reynisfjöru og það er ekkert endilega á færi einstakra landeigenda að leysa það.“

Gylfi telur að skynsamlegri leið sé að veita auknu fjármagni í aðgengismál og öryggismál, heldur en að banna vel búnu og þaulreyndu fólki að fara á Kirkjufellið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert